Hjólbarðaverkstæði og smurstöð - Efstubraut 2:
Opið mánudaga - fimmtudaga frá 8:00 - 17:00 (Lokað í hádeginu)
Föstudaga frá 8:00 - 16:00 (Annars 695-3363 Rúnar)
Útkallsþjónusta um helgar í síma 695-3363 eða 863-6002
Tölvuþjónusta og verslun - Húnabraut 4:
Opið alla virka daga frá 13:00 - 18:00 (Lokað í hádeginu)
Fyrirtækið var stofnað sumarið 2005 af tveimur brottfluttum Blönduósingum og einum vel reyndum skipstjóra. Ferlið fór af stað þegar fréttist að hjólbarðaþjónusta Léttitækni ehf var falt fyrir rétta upphæð. Eftir más og blás, ýmsa útreikninga og spekúlanir var slegið til og skrefið stigið til fulls. Húsnæði í Efstubraut 2 sem er ca 230fm + loft var keypt og húsnæðinu breytt örlítið og aðlöguð nýrri starfsemi ásamt því að rými var smíðað á 1.5hæð fyrir tölvuviðgerðir og bókhald.
Smurstöð:
Gerður var samningur við ESSO um smurstöð, ný lyfta keypt fyrir smurstöðina og ný rafmagnshurð sett upp.
Hjólbarðaverkstæði:
Rekstur, tól og tæki hjólbarðaverkstæðis Léttitækni ehf voru keypt og þau færð yfir í nýja húsnæðið ásamt öllum lager, sem var talsverður. Lagerinn þurfti ekki að ferðast langa leið en aðeins einn milliveggur á 2.hæð var færður til og þar með var opið á milli Léttitækni og Kjalfells.
Tölvuþjónusta og verslun:
Tölvuþjónustuna vantaði greinilega á staðinn og áður en fyrirtækið var formlega opnað var búið að selja nokkrar tölvur og fara í nokkrar viðgerðir út í bæ.
 |
Kristján Blöndal Jónsson
Tölvumaðurinn
Sími: 863-6002
Netfang: kristjan @ kjalfell.is
|
 |
Rúnar Örn Guðmundsson
Smurþjónusta, dekk og kerrusmíði
Sími: 695-3363
Netfang: runar @ kjalfell.is |
 |
Pawel Mickiewicz
Smurþjónusta og dekk
Sími: 452-4545
Netfang: |
 |
Darek Bogacewicz
Smurþjónusta og dekk
Sími: 452-4545
Netfang: |
Aukaleikarar
 |
Guðrún Blöndal
Nokkrir tímar á viku í bókhaldsmálum
Sími: 895-0595
Netfang: gudrun @ kjalfell.is |
 |
Jón Jóhannsson
Þegar á þarf að halda :)
Sími:
Netfang: |
 |
Sveinbjörn Guðlaugsson
Afleysingar í búð
Sími:
Netfang:
|