Hollenska dekkjaframleiðslufyrirtækið Vredestein hefur opnað vefsíðu þar sem upplýsingar er að finna um hversu mikill loftþrýstingur eigi að vera í dekkjum bíla. Auk þess er að finna þar upplýsingar um dekkjastærðir og dekkjagerðir sem eiga að vera undir einstökum bílategundum og –gerðum. Upplýsingarnar ná til 500 tegunda og gerða bíla og 1300 dekkjastærða. Slóðin inn á þessa ágætu heimasíðu er http://www.holdtrykket.dk
Þótt það sé Vredestein sem á heimasíðuna eru þær upplýsingar sem gefnar eru alls ekki einskorðaðar við Vredestein dekk heldur eru þetta almennar upplýsingar um allar bílategundir og þar með þjónusta við alla bílaeigendur.
Það skiptir miklu máli að hafa réttan loftþrýsting í dekkjunum upp á akstursöryggi og upp á það að dekkin endist sem best. Hægt er að velja um sex tungumál og kalla fram upplýsingar um bílinn sinn út frá hvaða tegund og gerð hann er og jafnvel hversu vélin í honum er stór. Þá birtast upplýsingar um loftþrýstinginn í kPa (kílópascal) - hver þrýstingurinn eigi að vera á annarsvegar afturhjólum og hins vegar framhjólum.
Margir reka sig á það þegar þeir eru að leita eftir upplýsingum um loftþrýsting í dekkjum að þær geta verið misvísandi og ruglað fólk í ríminu. Stundum er þrýstingurinn gefinn upp í pundum á fertommu, eða kílóum á fersentimetra. Það veldur oft ruglingi með þeim afleiðingum að fólk er að aka um með allt of lágan þrýsting í dekkjunum sem bæði er háskalegt auk þess sem dekkin endast óeðlilega stutt.
Vefsíðan er alls ekki hugsuð sem auglýsingamiðlun fyrir Vredestein heldur sem þjónusta við alla bíleigendur. Upplýsingarnar miðast ekki einungis við Vredestein dekk heldur öll dekk. Og við endurtökum að slóðin er http://www.holdtrykket.dk