Heim

Fréttir
-----------
Smurstöð

Hjólbarðar

Kerrusmíðar


Tölvuþjónusta
-----------
Um Kjalfell


Góð ráð

Kjalfell netverslun

PÓS
Pókerklúbbur


Vefmyndavél

Fréttir og tilkynningar

Október 2009

Verslunin fluttist föstudaginn 2.október yfir á Húnabraut 4. Nýja staðsetningin er mun betri en sú gamla og er þá komin meðal annarra verslana á Blönduósi. Húsnæðið er svipað að stærð þó örlítið minna en plássið mun nýtast margfalt betur, einnig er hærra til lofts. Nýja verslunin er miklu bjartari yfir að líta og snyrtilegri.

Í október seldi Kjalfell bilið sem það hafði áður keypt og er staðsett við hliðina á fyrirtæki að Efstubraut 2. Bilið keypti N1 Píparinn en þeir höfðu áður leigt húsnæðið undir lager og skrifstofuaðstöðu.

20.október 2008

Í sumar keyptum við bíl, Opel Combo, lítinn sparneytinn vinnubíl sem hentar í skutl bæði innanbæjar og utan. Einnig keyptum við gamlann Subaru sem er notaður svipað og Combo'inn. Svo var Nissan pallbíllinn endurnýjaður á haustdögum, gamli var orðinn óskoðanahæfur nema með dýru viðhaldi og því var fjáfest í svipuðum bíl og þeim gamla og pallurinn færður yfir. Við eigum semsagt þrjá ódýra og gamla bíla sem eru ódýrir í rekstri, við verðum seint sakaðir um bruðl og flottræfilshátt, enda aðstæður í landinu ekki til fyrirmyndar þegar þessi orð eru skrifuð.

Auka bilið sem við keyptum í vor hefur fengið góða upplyftingu, vel hefur verið tekið til hendinnar við málun og tiltekt. Svo hefur verið smíðuð skrifstofa og lageraðstaða með klósetti fyrir tilvonandi leigendur. Það eru að vísu leigendurnir sjálfir sem hafa unnið mest að þessum breytingum.

1.apríl 2008

Fengum loksins nýja bilið okkar afhent, það dróst svolítið að rusla út því sem þar var áður en núna getum við byrjað að laga það að okkar kröfum. Við höfum þegar í stað byrjað á að laga loftið, þar var plast hangandi í loftinu til varnar leka en við vorum áður búnir að setja nýtt þak þannig að plastið var orðið óþarft. Svo erum við byrjaðir að setja nýjar gólfplötur á loftið þar sem þær gömlu eru orðnar fúnar og illa farnar eftir lítið sem ekkert hefur verið hugsað um húsnæðið. Svo var sagað op á milli nýja og gamla húsnæðiðsins. Annars verður öllu sem var þarna inni ruslað út og hent beint á haugana.

Einnig prufuðum við í fyrsta skiptið að auglýsa kerrurnar okkar, við gerðum það í Fréttablaðinu og það er ekki hægt að segja annað en að sú auglýsing hafi borgað sig.

Janúar 2008

Gengið hefur verið frá kaupum á auka húsnæði en afhendingin á að vera 1.mars næstkomandi. Húsnæðið er næsta bil við hliðina á verkstæðinu og eykur möguleika okkar umtalsvert og mun örugglega nýtast okkur vel. Starfsemin er að stækka og við erum stanslaust að láta okkur detta eitthvað nýtt í hug.

Í byrjun janúar var loksins farið í að laga þakið, lagðar voru nýjar þakplötur ofan á þær gömlu og gekk það nokkuð vel þrátt fyrir smá óhöpp. Einn vinnumaðurinn skyndilega hvarf af þakinu þegar hann hrundi niður um glugga en sem betur fer komst hann óskaddaður frá óhappinu.

Einnig prufuðum við í fyrsta skiptið að auglýsa kerrurnar okkar, við gerðum það í Fréttablaðinu og það er ekki hægt að segja annað en að sú auglýsing hafi borgað sig.

 


Skýrara sjónvarp

Stafrænar útsendingar eru hafnar frá Hnjúk sem þýðir að sjónvarpsefni er mun skýrara en áður. Eina sem þarf er UHF loftnet sem flestir eru með í dag. Til að ná stafrænu merki þarf móttakara en í gegnum hann nærðu einnig fleiri stöðvum eins og Sirkus og SKY news.

Þar sem merki er tæpt getur verið gott að nota slíka móttakara, td má nefna bæ þar sem aldrei hefur náðs Skjár1 náðist sú stöð skýrt og vel með móttakara.



Siggi tekur við Sony MP3 spilaranum

Vinningshafinn úr Sony leiknum

Allir sem versluðu Sony vöru fyrir jól fóru í jólapottinn og dregið var 27.des um 29.900kr fullkominn Sony MP3 spilara úr fjölda nafna sem voru búin að kaupa Sony jólagjöf. Hinn heppni varð Sigurður Hjálmarsson sem vitanlega var sáttur með að fá svona jólabónus en hélt fyrst að það væri verið að plata hann.


Sleeptracker. Átt þú erfitt með að vakna á morgnana eða þekkirðu einhvern? Ef svo er þá er Sleeptracker rétta tækið. Time Magazine valdi Sleeptracker eina af bestu uppfinningum ársins 2005. Sleeptracker finnur besta tímann fyrir þig til að vakna á. Úrið fylgist með þegar þú ferð úr djúpsvefni yfir í léttsvefn og vekur þig þegar þú ert tilbúin að fara framúr. Að morgni getur þú svo séð hvernig nætursvefninn var og hversu vel þú hvíldist.

Umfjöllun Ísland í dag um úrið


September 2006

Þá er loksins verið að malbika planið fyrir framan dekkjaverkstæðið, þetta mun bæta aðstöðuna töluvert, þó aðallega snyrtimennskuna. Þannig hefur það verið að þegar mikið var um að vera í dekkjunum þá barst mjög mikil drulla inn og vonumst við nú að það hverfi að mestu.

Einnig hefur lofthæðin verið skipulögð. Heilmörg dekk eru í geymslu fyrir viðskiptavini og hefur skipulagið verið bætt til muna með nýjum dekkjarekkum og góðum merkingum. Í geymslu má segja að vel á fimmtu milljón að verðmæti fyrir utan okkar eigin lager.

Febrúar 2006

Með tilkomu verslunarinnar hefur Kjalfell ehf náð þjónustusamning við Landsímann hf. Hjá okkur er hægt að sækja um þá þjónustu sem Síminn hefur. Um ræðir nýskráningar, flutningstilkynningar, rétthafabreytingar o.fl á internettengingu, heimasíma og GSM. Þessi þjónusta á vel við okkur þar sem við getum síðan séð um að klára tengingar og uppsetningar á netinu í heimahúsum eða fyrirtækjum.

21.Febrúar 2006 - Opnun verslunar

Fimmtudaginn 23.febrúar veður verslunin formlega opnuð ef allt að óskum gengur. Efnt var til samkeppni um nafnið, innsend nöfn voru öll tekin til skoðunnar og svo var ákveðið að notast við Kjalfellsnafnið og láta búðina heita Kjalfell - Tölvuþjónusta. Opnunartími verður til að byrja með frá kl 11:00 - 18:00 alla virka daga.

Febrúar 2006

Verslun verður opnuð í febrúar á Húnabraut 19 þar sem áður var Lögmannsstofa Stefáns Ólafssonar. Þar mun aðallega vera um tölvuvörur að ræða en þó er aldrei að vita hvað þar verður að finna. Ekki hefur verið fundið nafn á verslunina og opnunartími verður auglýstur fljótlega. Tölvuverkstæðið og skrifstofan mun einnig flytjast niður á Húnabraut 19.

Janúar 2006

Kjalfell ehf hefur tekið í notkun afar fullkomna jafnvægisstillingavél. Vélin flýtir fyrir og einfaldar verkið mjög mikið ásamt því að leysa mörg vandamál sem áður var ekki hægt að leysa. Hunter GSP9700 reiknar mjög nákvæmlega allt í tengslum við hjólbarðann og sleppir dekkinu ekki fyrr en það er orðið fullkomið. Hægt er að skoða myndband um maskínuna HÉR

Heimasíða Hunter

26.október 2005 - Óska eftir notaðri ferðatölvu

mynd
Ef einhver á ferðatölvu sem hann vill losna við þá kemur fyrir að við séum með kaupendur af notuðum ferðavélum. Endilega hafðu samband ef þú lumar á einni vél. Vélin þarf að sjálfsögðu að vera í lagi, Windows má vera í ólagi en ekki hardware (skjár, harðdiskur, lyklaborð og fl.)

Senda póst

24.október 2005 | Mustek DVD ferðaspilari

Til sölu er DVD spilari sem er tilvalinn í ferðalagið, lítill og nettur með 8.4" Widescreen skjá. Tilvalinn í bílinn, flugið, tjaldið, húsbílinn eða hvar sem er...

meira um tækið...

17.október 2005 | Test frétt :)

Geiri keypti mikið gott bakkelsi með kaffinu, rosa flott alveg. Við fengum okkur ristað brauð með smjeri og svo kex.

14.október 2005 - Opnun heimasíðu rétt að gerast

Heimasíðan á uppleið, síðan á að vera notuð til að koma lágmarksupplýsingum á framfæri. Fréttir um hvað sé um að vera koma líka annað slagið... vonandi.

 


Kjalfell ehf
kt: 590505-0130 | Vsk nr: 87297
Hjólbarðaverkstæði og smurstöð: Efstubraut 2, 540 Blönduósi, S: 452-4545
Tölvuþjónusta og verslun: Húnabraut 19, 540 Blönduósi, S: 452-4567 - Fax: 452-4535
www.kjalfell.is | kjalfell at kjalfell.is