|
1. Við mælum með því að þú færir bifreiðina í allar reglubundnar skoðanir og smurningar, sem mælt er með í Þjónustubók. Endursöluverðmæti bifreiðarinnar hækkar, nýting vélar verður hagkvæmari og afl hennar helst stöðugt. Gott viðhald hefur áhrif á eldsneytiseyðslu og kemur í veg fyrir ótímabært slit. Þar að auki viðheldur þú ábyrgð bifreiðarinnar gagnvart göllum, sem upp kunna að koma.
2. Miklu máli skiptir að nota varahluti viðurkennda af framleiðendum. Þeir endast betur, passa betur og eru öruggari enda framleiddir samkvæmt ströngustu gæðastöðlum, sem fylgt er eftir af framleiðanda.
3. Fylgstu vel með loftþrýstingi í hjólbörðum. Sé of mikið eða of lítið loft í hjólbörðum getur það haft margvísleg áhrif: Slit á hjólbörðum getur margfaldast, bensíneyðsla eykst, bifreiðin verður þyngri í stýri, leitar jafnvel til hliðar og svo framvegis. Á límmiða í hurðarstaf flestra bifreiða er tafla, sem segir til um ráðlagðan loftþrýsting. Á flestum bensínstöðvum er hægt að fá loftmæli lánaðan - og minnka eða auka magnið af lofti í hjólbörðunum.
4. Aktu á jöfnum hraða hvort sem er innanbæjar eða utan. Snarpar inngjafir í innanbæjarakstri margfalda bensíneyðslu. Meiri hraði innabæjar eykur einnig notkun á bremsubúnaði eða stuðlar að auknu, ótímabæru sliti.
5. Ekki nota þvottakústa á bílinn þinn. Þvottakústar mynda grunnar rispur á lakki bifreiðarinnar og geta gert hann mattan á skömmum tíma, sérstaklega dökkar bifreiðar. Við mælum með því að bifreiðin sé skoluð með vatnssprautu til að hreinsa mestu óhreinindin af, síðan er hún þvegin með hreinum svampi í vatni með eilítilli sápu út í. Þegar búið er að strjúka yfir bifreiðina með svampinum er sápan skoluð af og bifreiðin þurrkuð með hreinu vaskaskinni. Byrjið ávallt að hreinsa bifreiðina ofan frá og endið á felgunum þar sem mestu óhreinindin er yfirleitt að finna.
6. Hafðu góða rúðusköfu í bílnum yfir vetrartímann. Þær kosta lítið en spara tíma og auka öryggi þitt að vetrarlagi þegar kalt er í veðri.
7. Notaðu afturrúðuhitarann einungis þegar héla er á rúðunni. Hitarinn eykur rafmagnsnotkun bifreiðarinnar, sem hefur áhrif á bensíneyðslu.
8. Ef bifreiðin er með fjarstýrðum samlæsingum er mælt með því að reglulega sé lykli stungið í skrárnar og bifreiðin opnuð og henni læst. Það heldur hreyfingu á búnaðinum og kemur í veg fyrir að hann stirðni. Á veturna er mælt með því að borið sé sílikon á hurðarlista og frostvari settur í skrár.
9. Flestar bifeiðar í dag eru með hljómtækjum, sem hægt er að smella framhliðinni af. Notið þennan möguleika þegar bifreið stendur úr augsýn eða utan alfaraleiða. Það minnkar líkur á innbroti.
|
Kjalfell ehf
kt: 590505-0130 | Vsk nr:
87297
Hjólbarðaverkstæði og smurstöð: Efstubraut 2, 540 Blönduósi, S: 452-4545
Tölvuþjónusta og verslun: Húnabraut 19, 540 Blönduósi, S: 452-4567 - Fax: 452-4535
www.kjalfell.is | kjalfell at kjalfell.is
|